Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Margrét Cassaro
  • Stađur: Kópavogur

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Atburđarteljari

Komin tími á blogg

06. október 2008 klukkan 13:49

Er ekki löngu komin tími á að blogga:-)  ég myndi nú halda það en það er ímislegt búið að gerast á síðustu vikum eins og til dæmis eitt stykki Króatíuferð Svalurjá algjört æði einnig var farið til Feneyja og það er nú meiri dýriðin það, margt að skoða og margt að sjá og svo er náttúrulega nauðsynlegt að vera með almennilegan ferðafélaga og rómantík,  ég hafði vit á því að huga að þessu enda hefði ferðin ekki getað verið betri.  Reyndar voru veikindi hjá mér í síðustu viku en ég er mætt aftur til vinnu með hestaheilsu og nýt þess bara að vera til. 
Vil láta ykkur sem hafið áhuga á góðum vítamínum og frábærum snyrtivörum á lágu verði að hún Hafdís er að selja þetta og ég get komið öllum í samband við hana en eins og þið vitið þá er nauðsynlegt að eiga góðan maska hreinsikrem og skrúbbkrem til að halda okkur ungum og sætum en Hafdís var að segja mér að t.d. maskinn sem er alveg frábær og er í stærðarinnar dollu kosti innan við 3000 krónur.  en hún er með svo margt margt fleira.  mailið hjá henni er hafdisc@hotmail.com. endilega látið hana fræða ykkur um þetta.  Ég er að fara að versla hjá henni á eftir og ætla að gera mig fína í kvöld jibbí
kossar og knús þangað til næst

29. júlí 2008 klukkan 11:55
OOh ég var búin að skrifa svooo mikið en það hefur greinilega dottið út æji ég verð bara að skrifa mjög fljótlega aftur

27. júlí 2008 klukkan 17:53
Góðan og blessaðan daginn
Eins og ég talaði um í síðasta bloggi þ.e.a.s. að labba esjuna þá varð það að veruleika um síðustu helgi, við mamma fórum saman og það var algjört æði gott veður og gula vinkonan á lofti, það var mikið skemmt sér hlegið og púlað.  niðurleiðin gekk einnig vonum framar en ég átti von á því að fá í hnén en það varð ekki og ég því enn sælli með ferðina.....
Núna um helgina er búið að vera mikið um útiveru því ég er búin að vera í Fjölskyldu og húsdýragarðinum bæði laugardag og sunnudag með Kristófer, Arnór og svo fengum við Róbert og Sumarrós lánuð svaka fjör og mikið gaman.  Arnór, Kristófer og Róbert fóru svo í bíó og voru að koma heim.  Ég held að ég skelli mér bara í bað núna og njóti þess að slaka á,,  ooohhh bara notalegt eftir langan dag
njótið nússins

Fríiđ búiđ

18. júlí 2008 klukkan 21:04
Jæja þá allt tekur enda og eins er því farið með sumarfríið mitt. Það var nú ekki gert neitt sérstakt í fríinu nema bara tekið því rólega, en eins skrítið og það hljómar að þá er bara gott að vera byrjuð að vinna aftur og komin í fasta rútínu. heyrirðu það Begga mín.   Veit ekki hvað ég á af mér að gera um helgina, hvernig væri að dúlla soldið við sjálfa sig og fara í sund og ræktina og kannski eitthvað meira, er jafnvel að spá í að labba Esjuna og taka sjénsinn á því að ég komist niður aftur. (hnéð að stríða mér).  Núna er ég stödd hjá Kötu systir og er með Hólmfríði litlu í fanginu, hún er eitthvað að reyna að teygja sig í lyklaborðið þannig að ég held að ég hafi þetta ekki mikið lengra að sinni en læt þó heyra í mér fljótlega aftur.

Bara rignir og rignir

13. júlí 2008 klukkan 16:45
Þetta er nú meiri veðráttan hérna,  ekki það að þetta sé ekki gott fyrir gróðurinn en maður vil nú fá pínu sól.....held að allir séu sammála því.
Við Hafdís skruppum að kaupa lampa og gardínur í eldhúsið hjá henni,  ætlum að gera kósí.  Núna er nýja fjölskyldan Hafdís og co í heimsókn hérna hjá okkur með litla prinsinn en hann er búinn að sofa svo til allan tímann en var að vakna,  Selma er núna að skipta á honum en hún er alveg dolfallin af litla frænda sínum.
Ég var mikið að spá í að fara norður til Guðrúnar systir um helgina en ætla að fresta því núna eins og oft áður,  mikla keyrsluna alltaf fyrir mér:-))
Kveðja til ykkar allra.

Enn í fríi

11. júlí 2008 klukkan 19:10
Hvernig er þetta eiginlega með mann,  ég held að ég sé að skipta mér einum of mikið af ömmubarninu en það er best að leyfa foreldrunum að sinna þessu enda er þeim fullkomlega treystandi til þess.. þarf að slá á puttana á mér......Hann er bara svo mikið æðislegur þessi elska...hvað getur maður gert??????? Hann er komin með síður á barnanet.is og þar er fullt af myndum
En allavega er dagurinn búinn að vera ágætur,  byrjaði á því að fara til Hafdísar og co svo í pottinn og gufuna í Hreyfingu en við mamma mættum of seint til að fara í leikfimitíma:-))))  aftur til Hafdísar og co (fattiði núna hvað ég meina) Eva Rut kom að sjá litla prinsinn og gaf honum ömmustól með titringi og musik ekkert smá flott.
Núna fer fríið mitt að verða búið, byrja að vinna á fimmtudaginn verð að njóta þess sem eftir er af því.
 

Loksins fćddur

08. júlí 2008 klukkan 21:08
Þetta er einn af 5 hamingjusömustu dögum lífs míns en Tristan Breki fæddist í dag 18 merkur og 55 cm og ég komin með nafnbótina amma,  Hann er algjört æði fallegur og yndislegur.  Setti inn nokkrar myndir.

Enn veriđ ađ bíđa

06. júlí 2008 klukkan 22:38
Við Hafdís bíðum og bíðum eftir drengnum okkar sem átti að koma í heiminn fyrir 12 dögum síðan,  en hann er eitthvað að þrjóskast við kannski að það sé bara svona gott að vera í mallanum hennar Hafdísar,greinilega.  Hún verður sett af stað seinnipartinn á morgun.
Fór í bíó með strákana í dag á myndina kung fu panda (gaman gaman) en kristófer fékk að geyma miðana meðan ég keypti popp og kók en honum tókst að týna þeim á meðan,  við létum það nú ekki slá okkur út af laginu og fórum miðalaus á myndina:-)
Búin að hjóla ca. 430 km en tók mér pásu um helgina (klikkelsi) bæti það upp næstu daga.
Hitti Hörpu og Beggu á föstudaginn og það var grillað saman og haft það gaman fram eftir kvöldi og gert gifsmódel af bumbunni hennar Hafdísar,,ekkert smá flott.
Ætli ég láti þetta ekki bara nægja að sinni, takk fyrir mig og góða nótt

Komin í frí

26. júní 2008 klukkan 18:18

Þó svo að mín sé komin í sumarfrí að þá var ekki hikað við að vakna klukkan átta í morgun og komið Arnóri í leikskólann og Kristóferi á fótboltanámskeið.  Ég og Selma fórum svo í hjólaleiðangur og hjóluðum niður í bæ.  Stoppuðum á kaffihúsi og svo var hjólað meira, fengum okkur að borða líka og héldum svo áfram að hjóla.  Held að við höfum náð ca. 20 kílómetrum.
Ég lét taka úr mér blóð í leiðinni en það myndaðist mikill gúlpur þar sem stungið var og ég er því vel vafin núna, en þær hjá blóðbankanum fóru með mig ljúfum höndum. 
Prinsinn hennar Hafdísa og hans Andra er ekki kominn í heiminn en í dag er 26 júní og ég er búin að halda því fram í lengri tíma að hann komi í dag. (lítur ekki út fyrir það núna) Hafdís er enn í fullu fjöri þó svo að fyrirverkirnir eru búnir að vera miklir. Læt vita þegar eitthvað fer að gerast.
kossar, knús og kram

Fínasti sunnudagur

22. júní 2008 klukkan 18:57
Þetta er nú búin að vera meiri dýrðardagurinn, Gula vinkonan er bara farin að láta sjá sig upp á hvern dag núorðið og bara gaman að því.  Fórum í Nauthólsvíkina hjólandi og þar var baðað sig í sólinni.  Kristófer og Arnór busluðu í sjónum og skemmtu sér konunglega. Selma er orðin ansi dökk en hún er ekkert smá fljót að fá lit.
Hafdís og Andri voru þarna og Siggi og Sigrún með Sigurð Rúnar,  Kata kom með börnin og mamma mætti á svæðið. 
Nú er verið að velta fyrir sér Spánarferð en ég er eitthvað svo tvístígandi með það,  Hafdís er að fara að eiga og ekki get ég verið að fara út nokkrum dögum eftir fæðingu litla prinsins. Ekki nema þá í mesta lagi viku, þarf að fara að ákveða mig,  Selma er alveg sjúk í að fara og er að reyna að tala mig inná það en já kannski látum við bara verða að því, verð að fara að ákveða mig.....
Þakka góðu og skemmtilegu fólki fyirir góðan dag. love you:-)

ps.Komin með kílómetramælinn í gang nú er bara að vera dugleg að hjóla og ná sem flestum kílómetrum.

Leikur dagsins

Nýjast á HumorPix

Funny Images, How to answer every True or False quiz Funny Images, Always makes my morning pee a tad more delightful. Funny Images, I wonder how the boss will take it… Funny Images, BukCookie Funny Images, Fun With Perspective Funny Images, Tattoo tricking a butterfly

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...