Fínasti sunnudagur
22. júní 2008 klukkan 18:57
Þetta er nú búin að vera meiri dýrðardagurinn, Gula vinkonan er bara farin að láta sjá sig upp á hvern dag núorðið og bara gaman að því. Fórum í Nauthólsvíkina hjólandi og þar var baðað sig í sólinni. Kristófer og Arnór busluðu í sjónum og skemmtu sér konunglega. Selma er orðin ansi dökk en hún er ekkert smá fljót að fá lit.
Hafdís og Andri voru þarna og Siggi og Sigrún með Sigurð Rúnar, Kata kom með börnin og mamma mætti á svæðið.
Nú er verið að velta fyrir sér Spánarferð en ég er eitthvað svo tvístígandi með það, Hafdís er að fara að eiga og ekki get ég verið að fara út nokkrum dögum eftir fæðingu litla prinsins. Ekki nema þá í mesta lagi viku, þarf að fara að ákveða mig, Selma er alveg sjúk í að fara og er að reyna að tala mig inná það en já kannski látum við bara verða að því, verð að fara að ákveða mig.....
Þakka góðu og skemmtilegu fólki fyirir góðan dag. love you:-)
ps.Komin með kílómetramælinn í gang nú er bara að vera dugleg að hjóla og ná sem flestum kílómetrum.

Jóna LIlja Pétursdóttir
Magga mín - þú ferð nú ekki að fara til útlanda þegar gula vinkona þín er á svæðinu. Hún gæti móðgast og látið sig hverfa. -
#2
24. júní 2008 klukkan 11:17

Já veistu þið hefðuð gott af því að skella ykkur út! Og strákarnir myndu sko heldur betur njóta þess, þeir eru á svo fínum aldri núna. En þú verður búin að ákveða þig áður en þú veist af :) Það er reyndar spáð svo geggjuðu veðri hér á landi að þið mynduð nú líka njóta sumarsins hér, gætuð farið í viku útileigur og svona.... Allavega gaman að fylgjast með blogginu þínu ;) (þó ég sé nú með þér uppá hvern dag heheh)
kossar og knús :*