Fríið búið
18. júlí 2008 klukkan 21:04
Jæja þá allt tekur enda og eins er því farið með sumarfríið mitt. Það var nú ekki gert neitt sérstakt í fríinu nema bara tekið því rólega, en eins skrítið og það hljómar að þá er bara gott að vera byrjuð að vinna aftur og komin í fasta rútínu. heyrirðu það Begga mín. Veit ekki hvað ég á af mér að gera um helgina, hvernig væri að dúlla soldið við sjálfa sig og fara í sund og ræktina og kannski eitthvað meira, er jafnvel að spá í að labba Esjuna og taka sjénsinn á því að ég komist niður aftur. (hnéð að stríða mér). Núna er ég stödd hjá Kötu systir og er með Hólmfríði litlu í fanginu, hún er eitthvað að reyna að teygja sig í lyklaborðið þannig að ég held að ég hafi þetta ekki mikið lengra að sinni en læt þó heyra í mér fljótlega aftur.
Hafdís Jóna
ooh væri alveg til í að labba Esjuna með þér! Við gerum það vonandi bara seinna ;)
#1
19. júlí 2008 klukkan 10:31
já Magga mín, þetta er fljótt að líða... ég labba með þér næst upp esjuna, reyndar kemst ég lítið sem er, enda að þræla um helgina og drepast í skrokknum, keppni sem sagt í kraftakeppni, og lenti mín í öðru sæti, ánægð með það bara.. en þræl skemmtilegt.. tek þetta á næsta ári...
kv frá Kópaskeri
kv frá Kópaskeri
#2
21. júlí 2008 klukkan 12:24
Begga
Jamm rétt hjá þér allt tekur enda einhverntimann.....Er að missa mig úr leti...því lengur sem sumarfríið er því latari verður maður. Ætlaði að vera ofsalega dugleg og vinna eitthvað í aukavinnunni...en bara tilhugsunin að sitja við tölvuna og teikna er mjög frá fráhrindandi...finn mér alltaf eitthvað annað að gera. Núna eru bara 13 dagar eftir af fríinu......omg
#3
22. júlí 2008 klukkan 10:36
Hafdís og co
Jæja nú er komin tími til að fara að blogga á ný mamma mín :D
#4
25. júlí 2008 klukkan 19:37







