Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Margrét Cassaro
  • Stađur: Kópavogur

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Atburđarteljari

Sumar og sól

21. júní 2008 klukkan 19:43

Jæja þá er þessi dagur að kveldi kominn,  sólin búin að vera á lofti í dag og ekki hægt annað en að njóta hennar.  Hjólaði í sund með strákana, Hafdísi og Selmu og þar hittum við the black mammy en við fórum í gömlu góðu Kópavogslaugina, og alveg rétt Alexander var líka með okkur.  Þetta var bara eins og að vera á Spáni þar sem veðrið var eftir því.  Eftir sund var fengið sér ís og svo hjólað niðrá Smáratorg á mac donalds.  Vorum að koma heim og klukkan að verða átta.  Geiri var boðið í óvæntan veiðitúr með Ara þannig að hann missti af þessu öllu saman.....greyjið hann. Nú er bara spurning hvort maður eigi að fara að taka til eða slappa af, kasta krónu upp á það.
Kveð í bili

Loksins

20. júní 2008 klukkan 16:19
Jæja loksins er þessum vinnudegi að ljúka og ég get farið út í góða veðrið, ætla að hjóla heim eins og venjulega og njóta þess. Hvað maður gerir svo um helgina er enn óvíst.  Hafdís er alveg sjúk í að fara í útilegu en ég er ekki eins jákvæð á það þar sem hún er sett eftir 4 daga, held að ég sé ekki alveg tilbúin að taka á móti barninu í fellihýsinu eða sambærilegum stað þó svo að ég sé næstum komin með skírteinið.hehehe.
Ætla að drífa mig af stað og kveð því í bili.

17 júní

18. júní 2008 klukkan 12:59
Dagurinn alveg fullkomin með skemmtilegu fólki og gulu vinkonunni líka.
Það var hjólað á Rútstún og skemmt sér vel þar.  Eftir það var farið í kaffi til ömmu í Holtó en þar var hópurinn allur af fólki. Eftir að hafa fengið sér kökur og sætindi þar var haldið áfram að hjóla og átti feriðn að vera niður í bæ en stoppuðum í Nauthólsvík og vorum bara þar en betra gat það ekki verið.  Kristófer, Arnór og Kristinn Aron svamlandi í sjónum og nutu þess til hins ítrasta enda ekki vanir að vera á strönd en þarna er alvöru strandarfílingur í svona veðri, Lilja litla dröfn lék sér við að moka og rölta um.  Ílengdumst þarna til átta en þá var ennþá sól,  erfitt var að fá krakkana til að fara.
Fórum svo í mat til ömmu í Holtó en hún á alltaf stóran part í þessum degi þar sem vaninn hefur verið sá að hún baki og geri eitthvað hressandi fyrir okkur hin sem erum svona upptekin við að vera úti með krökkunum.  En þetta var eins og ég segi frábær dagur.

Ćtla ađ vera svooooo dugleg ađ blogga

17. júní 2008 klukkan 01:05
Jæja loksins er ég búin að búa mér til bloggsíðu,,,gaman gaman.
Guðrún systir var svo almennileg að hjálpa mér við þetta hehehe en hún er snillingur í bloggi.
Selma loksins alkomin í bæinn eftir heilt skólaár á Akureyri en þar var hún í menntaskólanum og stóð sig með glæsibrag, hún ætlar að vera í skóla hérna fyrir sunnan næsta skólaár þó svo að kærastinn til átta mánaða sé fyrir norðan en ég á enn eftir að sjá hann auglits til auglits en mér líst bara nokkuð vel á myndirnar sem ég hef séð af honum. 
Hafdís er alveg á steypirnum en hún á að eiga eftir viku og við bíðum öll mjög spennt eftir litla prinsinum.  Hún er svooo flott ólétt algjör bumbugella......
Vorum í útilegu um helgina rétt við Laugarvatn,  strákarnir mínir Kristófer og Arnór skemmtu sér konunglega en þeir voru á trambolíninu og í minigolfi. Fórum líka í dýragarðinn Slakka í Laugarási þar skemmtu þeir sér ekki síður við að sjá dýrin og Kristófer tók völdin með myndavélina og þótti gaman að.
Mamma kom frá Costa del sol í dag dökkbrún og sælleg. svaka skvísa.
Svo er bara komið að 17 júní,,,,, vona bara að veðrið verði gott og stóla á að gula vinkona mín láti sjá sem mest af sér þarna uppi.
kossar og knús til allra sem eiga tök í mínu stóra hjarta:-)

Leikur dagsins

Nýjast á HumorPix

Funny Images, How to answer every True or False quiz Funny Images, Always makes my morning pee a tad more delightful. Funny Images, I wonder how the boss will take it… Funny Images, BukCookie Funny Images, Fun With Perspective Funny Images, Tattoo tricking a butterfly

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...